Færeyska stjórnin íhugar að kaupa hlut í Eik
Frá Tinganes í Þórshöfn þar sem skrifstofur landsstjórnarinnar eru til húsa. mbl.is/Dagur
Færeyska landsstjórnin íhugar að kaupa hlut í Eik banka. Danski tryggingasjóðurinn Finansiel Stabilitet yfirtók bankann í lok september og hefur boðið hann til sölu. Að sögn færeyska útvarpsins er færeyskum stjórnvöldum umhugað um að tryggja bankasamkeppni í Færeyjum og einnig, að koma í veg fyrir að Eik komist í erlenda eigu.
Færeyska landsstjórnin á þriðjungshlut í BankNordik, sem áður hét Færeyjabanki. Kaupi landsstjórnin hlut í Eik verður hluturinn í BankNordik seldur að sögn útvarpsins.
Þar sem það gæti haft áhrif á verð á hlutabréfum í BankNordik ef færeyska landsstjórnin seldi allan hlut sinn í einu kemur til greina að taka lán fyrir kaupverðinu á hlutnum í Eik. Síðan verði hlutur Færeyja í BankNordik seldur á löngum tíma og andvirðið notað til að greiða upp lánið.
Frestur til að leggja fram tilboð í Eik Banka rennur út 6. desember.



















