Magma rekið með hagnaði

Hagnaður kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy Corp. nam 13,4 milljónum Bandaríkjadala, rúmum 1,5 milljarði króna, á fyrsta fjórðungi rekstrarársins. Á síðasta rekstrarári, sem lauk þann 30. júní, nam tap félagsins 16,4 milljónum dala. Á fyrsta fjórðungi síðasta rekstrarárs nam tap þess 2,6 milljónum dala.

Dótturfélag Magma í Svíþjóð á nánast allt hlutafé HS Orku.

Hlutabréf Magma hækkuðu um 5% í kanadísku kauphöllinni á síðasta ársfjórðungi.

Magma Energy 98,5% hlut í HS Orku en á einnig hlut í fyrirtækjum í Bandaríkjunum og rómönsku Ameríku.

Sjá hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK