Viðskipti
| AFP
| 16.11.2010
| 21:34
Mikil lækkun á Wall Street
Talsverð lækkun var á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í kvöld. Skýringar á lækkuninni er rakin til mögulegra aðgerða kínverskra stjórnvalda til þess að stemma stigu við verðbólgu í landinu og afar slæma fjárhagsstöðu þriggja evru-ríkja.
Dow Jones vísitalan lækkaði um 177,03 stig eða 1,58% og er 11.024,94 stig. S&P 500 lækkaði um 1,61% og Nasdaq um 1,75%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















