Viðskipti
| mbl
| 17.11.2010
| 9:55
Gríðarlegar matvöruhækkanir í Kína
Kínversk stjórnvöld hyggjast meðal annars að auka framboð af svínakjöti til þess að stemma stigu við verðlagshækkunum. HAZIR REKA
Nú þegar hafa yfirvöld í nokkrum kínverskum borgum lýst því yfir að þak verður sett á matvælaverð. Financial Times hefur jafnframt eftir kínverskum ríkisfjölmiðlum að stjórnvöld í Peking íhugi að innleiða slík höft um land allt.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,4% í október mánuði. Hækkunin stýrðist fyrst og fremst af hækkunum á matvælaverði en það fór upp um 10% á ársgrundvelli í mánuðinum. Síðustu verðbólgumælingar hafa leitt til verulegrar lækkunar á hlutabréfavísitölunni í kauphöllinni í Sjanghæ. Þrátt fyrir það hafa menn fyrst og fremst áhyggjur af áhrifum vaxandi verðbólgu á pólitískan stöðugleika en hækkanirnar nú minna um margt á hækkanirnar sem áttu sér stað árið 2008 og mátti rekja til hækkandi heimsmarkaðsverðs á hrávöru.
Fram kemur í umfjöllun Financial Times að meðalverð á helstu matvörum í Kína hafi hækkað um 62,4% á síðustu tólf mánuðum. Algengt grænmeti á borð við hvítlauk og engifer hefur hækkað um 90% á tímabilinu. Fram kemur í umfjöllun Financial Times að stjórnvöld gruni að spákaupmennska hafi einhverju leyti stuðlað að þessari þróun. Hvati fjármagnseigenda til slíkrar spákaupmennsku er vissulega til staðar þar sem að raunvextir á innlánum eru nú neikvæðir í kínverska bankakerfinu.
Auk verðlagshafta hyggjast stjórnvöld bregðast við þessari þróun með því að auka framleiðslu á grænmeti sem og auka framboð á svínakjöti og sykri. Ennfremur hyggjast þau auka niðurgreiðslur til neytenda og grípa til aðgerða gegn hömstrun á matvælum.
Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna þá hefur vísitala fyrir matvælaverð í heiminum ekki verið hærri síðan sumarið 2008. Þá hafði viðvarandi hækkun á hrávöruverði leitt til mikilla matvælahækkana um heim allan og sumstaðar brutust út pólitískar óeirðir. Kínversk stjórnvöld hafa í þessu samhengi bent á að peningaprentun bandaríska seðlabankans leiði til hækkunar á heimsmarkaðsverði á hrávöru sem svo leiðir til hækkunar matvöruverðs í heiminum. Þrátt fyrir að fæstir neita því að samhengi sé á milli peningaprentunar bandaríska seðlabankans og verðhækkana á hrávöru bendir margt til þess að kínverski verðbólguvandinn sé að einhverju leyti heimatilbúinn. Þannig tvöfölduðust útlán í kínverska bankakerfinu í fyrra og flest bendir til þess að svipað þróun sé að eiga sér stað nú.
Fæstir hafa trú á því á að verðlagshöft dugi til þess að leysa verðbólguvanda. Í því ljósi er ekki hægt að útilokað að viðvarandi verðbólga í Kína kunni að leiða til þess að stjórnvöld leyfi júaninu að styrkjast að einhverju ráði gagnvart Bandaríkjadal. Bloomberg-fréttaveitan hefur eftir Fan Gang, fyrrum ráðgjafa kínverska seðlabankans, að slík gengisstyrking væri skilvirk leið til að stemma stigu við verðlagshækkunum á vörum á borð við sojaolíu og dýrafóðri og þar af leiðandi að draga úr undirliggjandi verðlagsþrýstingi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















