Sammála um að lækka vexti
Allir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans studdu tillögu seðlabankastjóra um að lækka stýrivexti um 0,75 prósentur í byrjun nóvember. Einn nefndarmaður vildi lækka vextina meira þar sem þjóðarbúskapurinn hefði reynst veikari en vænst hafði verið og verðbólga hjaðnaði hraðar.
Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar, sem Seðlabankinn birti nú síðdegis. Þar kemur fram, að nefndarmenn ræddu þann möguleika að lækka vexti um 0,75 til 1 prósentu. Telji nefndin, að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er.
Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapi hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið sé til skemmri tíma.
„Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið," segir í fundargerðinni.



















