Spáir 3% verðbólgu
Greiningardeild Arion banka spáir því, að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% í nóvember. Samkvæmt því er 12 mánaða verðbólga nú 3% samanborið við 3,3% í október.
Bankinn segir, að þrátt fyrir bakslag í nóvember, líkt og í október, séu allar forsendur fyrir hratt hjaðnandi verðbólgu á næstunni. Gengisstyrking krónunnar hafi aðeins komið fram að litlu leyti og lítil eftirspurn hljóti að skila sér í áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. Verði hins vegar áframhaldandi verðhækkanir á hrávörum úti í heimi sé sú hætta fyrir hendi að einhver kostnaðarverðbólga skili sér til landsins vegna þessa.
Arion banki birtir einnig bráðabirgðaspá um þróun verðbólgu næstu mánuði og gerir ráð fyrir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% í desember, lækki um 0,6% í janúar, aðallega vegna útsala, og hækki síðan um 0,45% í febrúar þegar útsölum lýkur.



















