Frávísunarkröfu Lúx-manna hafnað í vikunni
Banque de Havilland og Pillar Securitisation munu þurfa að verjast í riftunarmáli þrotabús Baugs hér á landi.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði þetta í vikunni, en ekki er hægt að áfrýja úrskurðinum, sem tengist 15 milljarða króna riftunarmáli sem þrotabú Baugs Group hefur höfðað á hendur fyrrverandi eigendum félagsins.
Þegar Hagar voru seldir út úr Baugi sumarið 2008 fyrir 30 milljarða króna voru 15 milljarðar af þeirri upphæð notaðir til að kaupa hlutabréf í Baugi Group af Fjárfestingafélaginu Gaumi, Gaumi A.S., Eignarhaldsfélaginu ISP og Bague S.A. Félögin eru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Pálmadóttur og Hreins Loftssonar, en Hreinn notaði allt söluandvirði Baugsbréfanna til að greiða niður skuldir við Kaupþing í Lúxemborg, rúmlega 1,3 milljarða króna.



















