Lárus Welding yfirheyrður
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur verið í yfirheyrslum hjá embætti sérstaks saksóknara í dag í tengslum við húsleitir, sem embættið lét gera á þriðjudag.
Þau sem hafa verið yfirheyrð í kjölfar húsleitanna eru þau Bernhard Bogason, Bjarni Jóhannsson, Guðmundur Hjaltason, Guðný Sigurðardóttir, Jóhannes Baldursson, Magnús Pálmi Örnólfsson, Rósant Már Torfason, Þorvaldur Lúðvík Sigurðsson og Þórleifur Stefán Björnsson auk Lárusar Welding. Allt þetta fólk er núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Glitnis,
FL Group og Sögu Fjárfestingarbanka.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti sérstaks saksóknara er einkum verið að rannsaka lánveitingar til félagsins Stíms, sem tengdust viðskiptum með hlutabréf í Glitni og FL Group, lánveitingar til félagsins FS-38 til kaupa á Aurum Holding Ltd. af Fons, lánveitingar
til Stoða, (síðar Landic Properties), Baugs og 101 Capital í
tengslum við kaup á danska fasteignafélaginu Keops, kaup fagfjárfestasjóðs GLB FX, sem var í vörslu Glitnis, á skuldabréfi af Saga Capital en bréfið var útgefið af Stími, og kaup Glitnis á hlutabréfum í Tryggingamiðstöðinni.



















