RÚV: Þorsteinn missir Vífilfell
Þorsteinn M. Jónsson,mun ekki halda Vífilfelli, samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV. Viðskiptablaðið greinir frá því að Þorsteinn muni halda fyrirtækinu en Arion banki sendi frá sér tilkynningu seint í gærkvöldi þar sem frétt Viðskiptablaðsins er sögð röng. Ekki hefur tekist að fá það uppgefið hvað sé rétt í þessu.
Samkvæmt RÚV er verið að ganga frá samningum á milli Þorsteins og Arion banka á endurskipulagningu á milljarða skuldum Þorsteins og felst í því samkomulagi að hann verði að gefa eftir Vífilfell.
Þorsteinn á Vífilfell í gegnum eignarhaldsfélagið Sólstafi en það fyrirtæki er afar illa statt, skuldar um 9 milljarða króna. Eignarhluturinn í Vífilfelli var í fyrra metinn á tæpa 3 milljarða króna. Þá skulda önnur félög í eigu Þorsteins tugi milljarða króna en eru nánast eignalaus, samkvæmt RÚV.
Þorsteinn M. Jónsson hefur náð samkomulagi við Arion banka um endurskipulagningu skulda félaga í hans eigu, að því er heimildir Viðskiptablaðsins herma. Samkomulagið mun gera honum kleift að halda stærstu eign hans, Vífilfelli.
Það er þó háð því að önnur fjármálafyrirtæki, sem eiga kröfu á Þorstein, samþykki samkomulagið og falli frá hluta af kröfum sínum. Á meðal þeirra eru Byr hf. Samþykki Byrs liggur ekki fyrir, samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka verður upplýst um það á næstu dögum hver niðurstaðan er í viðræðum milli Þorsteins og bankans.



















