Viðskipti
| Morgunblaðið
| 18.11.2010
| 5:30
| Uppfært
5:58
Stærstur hluti stjórnenda telur botni ekki náð
Stjórnendur í byggingar- og mannvirkjageiranum eru svartsýnastir allra, eða um 83% allra aðspurðra. mbl.is
Yfir 70% stjórnenda í íslensku atvinnulífi telja botninum í efnahagslægðinni ekki náð. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Capacent lét framkvæma fyrir skömmu, en stjórnendur 500 fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum tóku þátt í könnuninni.
Vart kemur á óvart að stjórnendur fyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eru einna svartsýnastir á þetta atriði, en um 83% stjórnenda úr þeim geira svöruðu að botni efnahagslægðarinnar væri ekki náð.Í umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag, kemur fram, að meðal annarra sérstaklega svartsýnna stjórnenda eru þeir sem vinna innan sérfræði-, vísinda- og tæknigeirans auk stjórnenda í landbúnaði og sjávarútvegi. Einna bjartsýnastir eru stjórnendur úr fjármála- og vátryggingageiranum, en um 45% allra úr þeim hópi telja botninum náð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















