Innbyrðis tengsl frá fornu fari
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Margvísleg tengsl eru innan hóps þeirra sem hafa verið yfirheyrðir af sérstökum saksóknara vegna rannsóknar á lánveitingum Glitnis síðustu mánuðina fyrir hrun bankans.
Fram hefur komið að húsleitir, yfirheyrslur og handtökur fyrr í vikunni hafi tengst fimm mismunandi málum, þar af þremur þeirra vegna Stím-málsins svokallaða. Einn þeirra sem yfirheyrðir voru er Bjarni Jóhannsson, fyrrverandi viðskiptastjóri hjá Glitni. Bjarni var samstarfsfélagi Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis og Gunnars Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Baugs, hjá Fjárfestingabanka atvinnulífsins (FBA), sem síðar átti eftir að renna inn í sameinaðan banka sem að endingu var nefndur Glitnir. Bjarni sá um viðskipti Baugs fyrir FBA og síðar Glitni, allt fram að bankahruni í október 2008.
Bjarni skrifaði dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur 13. október síðastliðinn þar sem hann lýsti óánægju með starfsaðferðir slitastjórnar Glitnis. Vísaði Bjarni þar til harkalegrar framgöngu lögmanns Kroll. Helgi I. Jónsson, dómstjóri, hefur þó úrskurðað að ekki sé efni til aðgerða, að teknu tilliti til rökstuðnings slitastjórnar Glitnis fyrir sínu máli.
Skólafélagar að norðan
Fram hefur komið að fagfjárfestasjóður á vegum Glitnis, GLB FX, keypti skuldabréf á Stím af Saga Capital í ágúst 2008 á einn milljarð króna. Sjóðstjóri GLB FX var Magnús Pálmi Örnólfsson, en heimildir Morgunblaðsins herma að hann hafi verið einn þeirra sem sérstakur saksóknari yfirheyrði vegna rannsóknarinnar á Glitni.
Magnús Pálmi var bekkjarbróðir þeirra Rósants Más Torfasonar og Jóhannesar Baldurssonar í Menntaskólanum á Akureyri, en tveir þeir síðastnefndu hafa einnig verið yfirheyrðir af sérstökum saksóknara. Magnús Pálmi er hins vegar ættaður frá Bolungarvík. Í dag deilir Magnús Pálmi skrifstofu með hinum bolvíska Jakobi Valgeiri Flosasyni, útgerðarmanni. Jakob Valgeir var stjórnarformaður Stíms, en hefur ekki verið yfirheyrður af sérstökum saksóknara.
Guðný Sigurðardóttir, sem var viðskiptastjóri hjá Glitni, var einnig yfirheyrð í vikunni. Bæði hún og áðurnefndur Rósant Már tengjast Aurum-málinu, sem er eitt þeirra atriða sem bæði sérstakur saksóknari og slitastjórn Glitnis hafa rannsakað. Guðný hafði hins vegar líka umsjón með lánveitingum til fasteignafélagsins Landic Property, en hluti rannsóknar sérstaks saksóknara snýr að viðskiptum tengdum Landic.
Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi forstöðumaður fyrirtækjasviðs Glitnis, var yfirheyrður í vikunni. Hann starfar í dag hjá Saga fjárfestingabanka, en tveir aðrir starfsmenn Saga voru yfirheyrðir í vikunni.



















