OR skuldar 229 milljarða króna

Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur nam 16,8 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra nam tap félagsins  11,3 milljörðum krónum. Skýrist þetta af hækkun á gengi íslensku krónunnar og lægri fjármagnskostnaði.

Heildarskuldir nema  229 milljarðar króna, en hafa lækkað um 12,3 milljarða frá áramótum. Heildareignir eru 286 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall fyrirtækisins því 20,1%.  Árshlutareikningur samstæðu OR var samþykktur á stjórnarfundi í dag.

1,5 milljarður í vexti á níu mánuðum

Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst um 11,5% það sem af er ári. Greiddir vextir fyrstu níu mánuði ársins námu 1,5 milljörðum króna. Samsvarandi fjárhæð 2009 var 4,1 milljarður króna. Vaxtakostnaður lækkar því á milli ára um tvo þriðju, eða 2,6 milljarða, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Ástæðan er að á árinu 2009 þurfti OR að leita á íslenskan lánamarkað, þar sem vextir eru meira en tífaldir meðalvextir erlendra lána OR, sem eru nú 1,01%."

Rekstrarhagnaður OR fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, fyrstu níu mánuði ársins 2010 var 9,9 milljarðar króna. Hagnaður fyrir skatta nam 22,4 milljörðum. Reiknaðir skattar eru 5,6 milljarðar og afkoma tímabilsins því jákvæð sem nemur 16,8 milljörðum króna.

Helgi Þór Ingason, forstjóri OR, segir í tilkynningu:
„Þessi afkomubati er mjög jákvæður og við vinnum að því að framhald verði á. Ennþá byggist hinn bókhaldslegi hagnaður að mestu leyti á hagstæðum ytri skilyrðum eins og hækkuðu gengi krónunnar og hærra álverði.

Þær margháttuðu aðgerðir, sem ákveðnar voru síðsumars og ráðist í á haustmánuðum – hagræðing í rekstri og tekjur auknar – eiga enn eftir að skila sér í uppgjörum fyrirtækisins.

Ég leyfi mér að vona að reksturinn sé með þeim að öðlast þá tiltrú sem þarf til að hagkvæm fjármögnun fáist. Afkomubatinn er enn bókhaldslegur að mestu leyti og við vinnum þétt með eigendum fyrirtækisins og íslenskum og erlendum fjármálafyrirtækjum til að tryggja greiðslugetu OR á næsta ári. Það er enn brýnasta viðfangsefni í rekstri OR.“

Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Áformað er að taka 4. áfanga hennar, framleiðslu á heitu vatni, í notkun undir lok yfirstandandi árs og 5. áfanga virkjunarinnar, framleiðslu á 90 MW rafafls, síðla árs 2011. Samið hefur verið við Evrópska fjárfestingabankann um fjármögnun helmings 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar. Viðræður um frekari fjármögnun fyrirtækisins standa yfir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK