Greining Íslandsbanka spáir frekari lækkun vaxta
Síðasta vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar var 3. nóvember síðastliðinn og lækkaði nefndin þá stýrivexti bankans um 0,75 prósentur. Í yfirlýsingu nefndarinnar vegna ákvörðunarinnar segir að nefnd telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til frekari lækkunar Seðlabankavaxta, að því gefnu að gengi krónunnar haldist stöðugt og verðbólga hjaðni eins og spáð er. Hún gerir þó þann fyrirvara að óvissa sé um hversu svigrúmið er mikið vegna áforma um afnám hafta á fjármagnshreyfingar.
„Gengi krónunnar hefur haldist nær óbreytt frá vaxtaákvörðuninni í upphafi nóvember. Vegna talsverðrar hreyfingar í gengi evru gagnvart dollaranum hefur krónan hins vegar styrkst gagnvart evrunni á tímabilinu en veikst gagnvart dollaranum. Virðast regluleg kaup Seðlabankans á gjaldeyri hafa lítil áhrif á gengi krónunnar og styðja gjaldeyrishöftin, afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd og munur innlendra og erlendra vaxta við krónuna," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
Greining Íslandsbanka væntir þess að peningastefnunefndin lækki vexti bankans áfram á næstunni, en þó með þeim skorðum sem uppbygging fjármálakerfisins og áætlun um afnám gjaldeyrishafta setja vaxtastefnunni.
„ Vaxtalækkuninni hjálpar fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda sem ætti að vera í höfn um áramótin, Icesave samkomulagið sem gæti verið í höfn nú á fyrri hluta vetrar og hækkun lánshæfismats ríkisins sem hugsanlegt er að fylgi.
Spáum við því að nefndin verði komin með veðlánavexti bankans niður í 4,5% snemma á næsta ári en virkir raunstýrivextir verða þá engu að síður svipaðir og þeir eru nú. Reiknum við með því að nefndin láti þar staðar numið þar til hún tekur að hækka vexti bankans á ný 2011 tengt afnámi gjaldeyrishafta og viðsnúningi í hagkerfinu."



















