Landsbankinn setur fasteignafélag í sölu
Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu.
Tilgangur Regins A3 ehf. er kaup, sala og rekstur fasteigna. Félagið er með 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Starfsemi félagsins er í dag að fullu úthýst til Regins ehf.
Seljandi hlutafjárins er Reginn atvinnuhúsnæði ehf. sem er í eigu Regins ehf.
„Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Aðilar þurfa jafnframt að gefa til kynna það verð sem þeir eru reiðubúnir að greiða fyrir hlutafé félagsins.
Frestur til að skila inn bindandi tilboði rennur út klukkan 16:00, mánudaginn 20. desember 2010," segir í fréttatilkyningu.



















