Endurskipulagningu sparisjóðanna að ljúka
Endurskipulagning sparisjóða hefur staðið yfir um nokkurn tíma. Telur Seðlabanki Íslands að þeirri vinnu fari brátt að ljúka en Seðlabanki Íslands var helsti kröfuhafi fimm þeirra. Á það sér rætur í gjaldþroti Sparisjóðabanka Íslands hf. í mars árið 2009, en þá var Seðlabankanum gert að yfirtaka innstæður sparisjóða hjá Sparisjóðabankanum.
Þetta kemur fram í Fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands.
Til að mæta þeim skuldbindingum sem Seðlabankinn tókst á hendur voru kröfur á hendur sparisjóðum færðar til Seðlabankans með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda Sparisjóðabankans.
Nú hafa tveir sparisjóðir lokið endurskipulagningu; Sparisjóður Norðfjarðar og Sparisjóður Bolungarvíkur. Að öllum líkindum munu Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis fylgja í kjölfarið á næstu vikum. Verður þá lokið endurskipulagningu þeirra fimm minni sparisjóða sem ekki uppfylltu skilyrði laga um lágmark eigin fjár í kjölfar bankahrunsins.
Við endurskipulagningu ofangreindra sparisjóða eignast Seðlabanki Íslands og Byggðastofnun stóran hluta stofnfjár í sparisjóðunum. Stofnfjárhlutirnir sem Seðlabankinn fær verða í kjölfarið framseldir til Bankasýslu ríkisins sem verður falið að fara með eignarhald þeirra fyrir hönd ríkisins. Þann 14. október sl. náðu fjármálaráðuneytið, slitastjórn Byrs sparisjóðs og Byr hf., sem er viðskiptabanki, samkomulagi um uppgjör og eignarhald Byrs hf.
Hlutur ríkisins í Byr hf. verður 5,2% en hlutur Byrs sparisjóðs 94,8%. Hlutur Byrs sparisjóðs verður þó áfram í vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins, en í samstarfi við slitastjórn Byrs sparisjóðs eða þar til að slitastjórnin kallar eftir honum. Gert er ráð fyrir að það gerist innan tveggja ára. Með samkomulaginu verður Byr hf. fullfjármagnaður og fær nýjan stofnefnahagsreikning sem uppfyllir eiginfjár- og lausafjárkvaðir Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Ríkissjóður mun veita Byr hf. allt að 5 ma.kr. víkjandi lán á markaðskjörum til 10 ára, sem ráðgert er að Byr hf. greiði upp á 5 árum. Kröfu Byrs sparisjóðs á Byr hf. verður breytt í hlutafé í Byr hf. en útgefið hlutafé í bankanum verður um 17,2 ma.kr. og lögbundið eiginfjárhlutfall 16,4%.
Þann 5. nóvember sl. náðu slitastjórn Sparisjóðsins í Keflavík og SpKef sparisjóður samkomulagi um uppgjör vegna yfirtöku SpKef sparisjóðs á innstæðum og rekstri Sparisjóðsins í Keflavík. Samkomulagið felur í sér greiðslu 300 m.kr. til Sparisjóðsins í Keflavík. Gert er ráð fyrir að endurfjármögnun sparisjóðsins ljúki von bráðar og mun sparisjóðurinn uppfylla eiginfjár- og lausafjárkröfur Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands.



















