Kröfuhafar Kaupþings upplýstir um stöðu sína
Ólafur Garðarsson, formaður slitastjórnar Kaupþings, segir í samtali við Bloomberg fréttastofuna, að mögulegt sé að einhverskonar samkomulag náist við kröfuhafa bankans eftir ár.Þeim stendur til boða að gera skiptasamning sem felur í sér að þeir fái hlut í stað þess sem þeir eiga inni hjá þrotabúinu.
Þeir sem þurfi á peningunum að halda geti fengið greitt út, en kynnt verður á fundi með kröfuhöfum þann 3. desember hver staða þeirra er, en þeir sem velja sjá betri ávöxtun af fjármunum sínum geta valið að bíða lengur.
Alls eru kröfurnar 56 milljarðar Bandaríkjadala, samkvæmt skýrslu skilanefndar Kaupþings frá því í október. Þeir sem keyptu skuldabréf bankans geta gert ráð fyrir að fá 26,25% til baka.
Kaupþing banki fór í formlega slitameðferð þann 22. nóvember sl., samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur en þann dag rann út endanlegur tímafrestur vegna greiðslustöðvunar, sem bankinn hefur verið í undanfarin tvö ár. Bankinn fékk fyrst greiðslustöðvun 24. nóvember 2008.



















