Bandaríkjadalur hækkar um 1%
Gengi krónunnar hefur veikst þó nokkuð gagnvart Bandaríkjadal frá byrjun þessa mánaðar. Bandaríkjadalur hefur styrkst um 1% í dag og er um 116 krónur en hann fór niður í 109 krónur í byrjun mánaðarins. Mun minna flökt hefur verið á gengi krónu gagnvart evru og kostar evran nú um 153 krónur en kostaði í upphafi mánaðarins tæpum tveimur krónum meira.
Hefur
gengisvísitala krónunnar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu
viðskiptaþjóða Íslands gagnvart krónunni, þar með hækkað aðeins í
mánuðinum sem má að mestu rekja til styrkingu Bandaríkjadals gagnvart
krónu. Stendur gengisvísitalan nú í rúmum 206 stigum en í upphafi þessa
mánaðar fóru hún undir 204 stig, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Rólegt hefur verið á millibankamarkaði með gjaldeyri það sem af er nóvembermánuði og hafa viðskipti með gjaldeyri verið afar strjál, sem er í takti við þróunina undanfarin misseri. Þannig nemur heildarveltan á millibankamarkaði frá 1. til og með 23. nóvember 1.313 m.kr. og þar af eru viðskipti Seðlabanka Íslands 928 m.kr., eða sem jafngildir rétt rúmlega 70% af heildarveltunni. Bendir þetta til þess að veltan skreppi enn frekar saman.
Í síðasta mánuði var veltan 2.176 m.kr., en kaup Seðlabankans með gjaldeyri voru þá um 43% af heildarveltunni. Jafnframt er þetta mun minni velta en í nóvember í fyrra, en þá nam heildarveltan á millibankamarkaði tæpum 6,3 mö.kr. og var því tæplega fimmfalt meiri en veltan hefur verið þennan mánuðinn. Þó ber augljóslega að hafa í huga að þrátt fyrir að velta á millibankamarkaði sé lítil geta gjaldeyrisviðskipti hjá hverjum viðskiptabanka fyrir sig verið talsverð. Ef þokkalegt jafnvægi er í innflæði gjaldeyris og útflæði hjá hverjum banka fyrir sig hafa þeir þannig ekki þörf fyrir að leita á millibankamarkað með kaup eða sölu gjaldeyris," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.



















