Hagnaður Landsbankans 12,9 milljarðar

Hagnaður Landsbankans (NBI) nam 12,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Á þriðja ársfjórðungi nam hagnaður bankans 3,5 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár fyrstu 9 mánuðina er 10,9%. Eiginfjárhlutfall Landsbankans er nú 17,3%. Fjármálaeftirlitið gerir kröfu  um að eiginfjárhlutfall banka fari ekki undir 16%.

Heildareignir bankans voru 1.085,5 milljarðar króna í lok september.  Innlán í hlutfalli við útlán til viðskiptavina voru 63,6%. Rekstrarkostnaður bankans af reglulegri starfsemi nam 4,1 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi.

Varúðarfærsla vegna dóma 8,3 milljarðar króna

Landsbankinn hefur með sérstökum varúðarfærslum tekið tillit til niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti erlendra lána sem féll 16. júní. Einnig dóms Hæstaréttar um vaxtaviðmið gengistryggðra lána sem féll 16. september, segir í afkomutilkynningu frá NBI. 

Vegna þessa gjaldfærði bankinn um 8,3 milljarða króna strax á öðrum ársfjórðungi. Stærstur hluti þeirrar fjárhæðar er vegna virðisrýrnunar lána SP-Fjármögnunar, dótturfélags bankans.

Þriðji ársfjórðungur einkenndist af kyrrstöðu

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segist sáttur við rekstur bankans á þriðja ársfjórðungi. Hann segir hins vegar að þessir mánuðir hafi einkennst af kyrrstöðu. „Landsbankinn vill vera hreyfiafl í íslensku samfélagi og ætlar sér forystuhlutverk í uppbyggingu atvinnulífs. Í þeim tilgangi hefur bankinn meðal annars ákveðið að selja hratt þau fyrirtæki sem hann eignast og er nýleg sala iðnfyrirtækisins Límtrés Vírnets til marks um það. Lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis var selt í júlí og með þessu móti viljum við reyna að koma hreyfingu á markaðinn og örva hann.

Landsbankinn reyndi líka að selja verslunarmiðstöðina Smáralind en varð að hætta við vegna þess að tilboðin voru óviðunandi. Þar voru erlendir fjárfestar áhugasamir en drógu sig í hlé vegna þessarar biðstöðu og miklu óvissu sem hér ríkir. Úr þessu ástandi verður að bæta.“

Meginmarkmiðið að hraða uppgjöri skuldamála heimila og fyrirtækja

Steinþór segir að meginmarkmið bankans sé eftir sem áður að hraða uppgjöri skuldamála heimila og fyrirtækja og búa þannig um hnúta að sem flestir uni sæmilega sáttir við sitt. ,,Við höfum á undaförnum mánuðum unnið að endurútreikningi erlendra lána sem viðskiptavinum býðst að breyta í íslensk, til samræmis við fyrirliggjandi lagafrumvarp og við höfum unnið að úrbótum á þeim lausnum sem við bjóðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga í samráði við stjórnvöld og á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja. Við bindum vonir við að þessi vinna skili okkur vel áleiðis.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK