Aflaverðmæti eykst milli ára
mbl.is
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 91 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 77 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14 milljarða eða 18,2% á milli ára.
Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 64 milljarðar og jókst um 21,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 53 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 30 milljarðar og jókst um 28,1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 11 milljörðum og jókst um 5,3%. Verðmæti karfaaflans nam 7,6 milljörðum, sem er 24,7% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 31,6% milli ára og nam 5,6 milljörðum á fyrstu átta mánuðum ársins 2010.
Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst
2010, sem er 3,1% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla
jókst um 15,1% milli ára og nam 17,7 milljörðum.
Verðmæti afla
sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 36
milljörðum króna og jókst um 23% frá árinu 2009. Aflaverðmæti
sjófrystingar voru tæpir 33,3 milljarðar, sem er 26,7% aukning milli
ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst
um 39,6% milli ára og var um 13,4 milljarðar.



















