Viðskipti
| AFP
| 2.12.2010
| 9:20
Rúmar fjórar milljónir Spánverja án vinnu
Biðraðir eftir atvinnuleysisbótum lengjast enn á Spáni fjórða mánuðinn í röð en hvergi innan Evrópusambandsins mælist atvinnuleysi jafn hátt og þar. Alls voru 4,085 milljónir manna án atvinnu á Spáni í nóvember sem er fjölgun um ríflega 24 þúsund manns á milli mánaða.
Á einu ári hefur mikil aukning orðið á atvinnuleysi á Spáni og eru 241.348 fleiri nú á atvinnuleysisskrá en í nóvember í fyrra.
Stjórnvöld á Spáni gefa ekki upp hlutfall atvinnulausra í landinu en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Spánar, sem notar önnur viðmið við talningu, mælist atvinnuleysi 19,79% á Spáni á þriðja ársfjórðungi. Á öðrum ársfjórðungi mældist það 20,09%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















