Skipti greiða 19 milljarða lán
mbl.is/Kristinn
Skipti hf., móðurfélag Símans, segist hafa lokið í öllum meginatriðum samningum við lánardrottna félagsins og sé vinna við skjalagerð á lokastigi. Í samkomulaginu felist meðal annars að Skipti greiða niður alls um 19 milljarða króna af lánum félagsins.
Með því að greiða um 19 milljarða króna inn á lán félagsins mun sambankalán Skipta lækka úr um 41,7 milljörðum króna í um 22,7 milljarða króna. Félagið segir, að engar skuldir séu afskrifaðar og öll lán Skipta séu eftir sem áður í skilum.
Í tilkynningu frá félaginu segir, að viðræður hafi staðið um nokkurt skeið um að Skipti greiði lán félagsins hraðar niður en upphaflegir lánasamningar gerðu ráð fyrir. Lausafjárstaða Skipta hafi verið mjög sterk, félagið átti í lok júní um 16,6 milljarða króna í handbæru fé og í júlí var gengið frá sölu Skipta á norræna upplýsingatæknifyrirtækinu Sirius IT með umtalsverðum söluhagnaði.
Segir félagið að í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi hafi skuldir Skipta hækkað umtalsvert líkt og flestra annarra íslenskra fyrirtækja. Þeir fjármunir sem nú séu greiddir hafi fengist við sölu erlendra eigna félagsins annars vegar og hins vegar með því að beita ítrasta aðhaldi í rekstri.
Fram kom í Morgunblaðinu í dag, að Skipti eru talin einskis virði
í nauðasamningum móðurfélagsins Exista. Fram komi í ársreikningi
skipta fyrir árið 2009 að um 74 milljarðar króna falla á gjalddaga á árunum
2012-2014. Heildarskuldir Skipta voru í ársbyrjun um 95 milljarðar króna. Félagið var rekið með tapi í fyrra og á fyrri hluta þessa árs.



















