Viðskipti
| AFP
| 4.12.2010
| 7:39
Miramax komið í eigu hóps fjárfesta
Bandaríska afþreyingarfyrirtækið Walt Disney seldi dótturfélag sitt Miramax kvikmyndaverið til fjárfestingafélags, sem meðal annars er í eigu fjárfestingarsjóðs fjölskyldu emírsins af Katar í gær en nokkrir mánuðir eru síðan fyrst var greint frá sölunni.
Kaupandinn, Filmyard Holdings LCC, er auk þess í eigu Thomas J. Barrack Jr., Colony Capital LLC og Ronald Tutor, greiðir 663 milljónir Bandaríkjadala fyrir Miramax, samkvæmt tilkynningu sem var send út í gærkvöldi.
Með í kaupunum er réttur á um 700 kvikmyndum, þar á meðal Óskarsverðlaunamyndunum Chicago, Shakespeare in Love og No Country for Old Men.
Stofnendur Miramax eru Weinstein-bræðurnir, Harvey og Bob, sem eru með umtöluðustu framleiðendum í kvikmyndaheiminum. Stofnuðu þeir félagið árið 1979 en seldu það til Disney árið 1993 á 100 milljónir dala.
Miramax var þekkt á níunda áratugnum fyrir kvikmyndir eins og Scandal, Sex, lies and videotape, Tie Me Down, The Crying Game, Pulp Fiction og Clerks.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















