Viðskipti
| AFP
| 6.12.2010
| 21:23
Dow Jones lækkaði lítillega
Dow Jones vísitalan og Standard & Poor's vísitalan lækkuðu báðar á Wall Street í kvöld eftir að seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben Bernanke, ýjaði að því að bankinn væri tilbúinn til að grípa inn ef hagkerfið nær ekki að fara sjálfkrafa af stað á ný.
Dow Jones lækkaði um 19,83 stig, 0,17% og er lokagildi vísitölunnar 11.362,26 stig. S&P lækkaði um 0,13% en Nasdaq hækkaði um 0,13%.
Bernanke sagði í viðtali við CBS sjónvarpsstöðina að Seðlabankinn myndi jafnvel grípa frekar inn á markaði en tilkynnt var í síðasta mánuði en það fer allt eftir stöðu mála til að mynda hver verðbólgan verður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















