Hægt hefur á samdrættinum í hagkerfinu
Einkaneysla jókst um 1,8% á þriðja ársfjórðungi frá sama ársfjórðung síðasta árs og er það í fyrsta skipti síðan fyrir hrun að vöxtur mælist í einkaneyslu á þennan mælikvarða. Reuters
Landsframleiðslutölur fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs benda til þess að hægt hafi umtalsvert á samdrættinum í hagkerfinu. Mældist 1,6% samdráttur á milli þriðja ársfjórðungs í ár og sama ársfjórðungs í fyrra og er það mun minni samdráttur en mælst hefur frá árslokum 2008.
Einkaneysla jókst um 1,8% á þriðja ársfjórðungi frá sama ársfjórðung síðasta árs og er það í fyrsta skipti síðan fyrir hrun að vöxtur mælist í einkaneyslu á þennan mælikvarða. Fjárfesting dróst saman um 10,8% á þriðja ársfjórðungi borið saman við sama ársfjórðung árið áður sem er mun minni samdráttur en varð á öðrum ársfjórðungi þegar fjárfesting dróst saman um 16%. Þá er um að ræða miklu minni samdrátt en á sama tíma í fyrra en þá dróst fjárfesting saman um 53,7% milli ára, segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var 5,5% samdráttur samanborið við 6,0% samdrátt á sama tímabili í fyrra. Litlu minni samdrátt má því greina í þeim tölum þrátt fyrir að tölur fyrir þriðja ársfjórðung sýni að vissu leiti að hægt hafi á samdrættinum.
„Tölur Hagstofunnar í morgun virðast þannig benda til þess að samdrátturinn í ár verði umtalsverður. Samkvæmt þjóðhagsspá okkar verður 3,1% samdráttur í ár. Seðlabankinn reiknar hins vegar með 2,6%, OECD með 3,6% og Hagstofan ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum með 3,0%. Til þess að þessar spár gangi eftir er ljóst að myndarlegan hagvöxt þarf á síðasta fjórðungi ársins," segir í Morgunkorni.



















