Hagnaður Skipta 4,4 milljarðar
mbl.is/Kristinn
Hagnaður Skipta, móðurfélags Símans, á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 4,4 milljörðum króna sem
skýrist einkum af söluhagnaði vegna sölu á erlendum eignum og
gengisþróun íslensku krónunnar. Tap á sama tímabili árið 2009 var 1,6
milljarðar króna. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Sala nam 26,9 milljörðum króna samanborið við 29,8 milljarða á sama tímabili árið áður.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 5,1 milljörðum króna samanborið við 7,1 milljarð fyrir sama tímabil 2009. EBITDA hlutfall var 19%.
Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 43,5 milljörðum króna við lok tímabilsins en voru 52,8 milljarðar á sama tíma ári áður og hafa því lækkað um 9,3 milljarða króna.
Eigið fé Skipta er 29,2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall er 26%.



















