Actavis gerir dómssátt
Samheitalyfjafyrirtækið Actavis Group þarf að greiða allt að 13 milljónir Bandaríkjadala í sátt vegna þess að fyrirtækinu sást yfir að vara viðskiptavini sína við því að Digoxin, samheitalyf fyrir Digitek hjartalyfið væri gallað. Greint er frá þessu á vef Business Week.
Actavis samþykkti að stofna sjóð sem væri með 10 milljónir dala í stofnfé og að bæta allt að 3 milljónum dala til viðbótar í sjóðinn ef 98% þeirra sem hefur gert kröfur á hendur fyrirtækinu vegna Digitek samþykkir sáttina. Verður sjóðurinn síðan nýttur í að greiða þeim sem hafa orðið fyrir tjóni bætur.
Það margir viðskiptavinir Actavis hafa játað tilboðinu að sjóðurinn er kominn í 12 milljónir dala, samkvæmt upplýsingum Business Week. Einungis þeir sem geta lagt fram fullnægjandi gögn um að þeir hafi orðið fyrir tjóni fá greiddar bætur úr sjóðnum.
Actavis samþykkti að koma sjóðnum upp í september eftir að um þrjú þúsund kröfur höfðu borist vegna Digitek. Lyfið er notað við hjartveiki og hjartsláttartruflunum.
Upplýsingar frá Actavis settar inn kl. 10
„Actavis hefur gert sátt við lögfræðinga stefnenda í málinu sem felur í sér að málsóknir u.þ.b. 3.000 einstaklinga á hendur félaginu í Bandaríkjunum verða dregnar til baka. Í þessu felst ekki viðurkenning á sök eða skaðabótaskyldu Actavis. Félagið mun leggja fé í sjóð og eiga þeir einir sem sýnt geta fram á raunverulegan skaða rétt á greiðslu úr honum. Í upphafi munu 10 milljónir Bandaríkjadala verða í sjóðnum, en 3 milljónum dala verður bætt við ef 98% stefnenda taka þátt í dómssáttinni.
Þess ber að geta að eins og önnur lyfjafyrirtæki sem starfa á Bandaríkjamarkaði er Actavis tryggt fyrir kostnaði vegna lögsókna af þessu tagi."



















