Viðskipti
| mbl
| 14.12.2010
| 11:32
| Uppfært
11:56
Verðbólga langt yfir markmiðum Englandsbanka
Verðbólga í Bretlandi mældist 3,3% í nóvember. Verðbólgan hefur ekki verið hærri í hálft ár og er hún vel yfir 2% viðmiðum Englandsbanka. Líklegt þykir að þrálát verðbólga verði til þess að Englandsbankinn láti af aðgerðum til þess að styðja við þenslu í hagkerfinu.
Samkvæmt breska blaðinu The Daily Telegraph voru það hækkanir á fatnaði og matvælum sem héldu verðbólgunni upp í mánuðinum. Englandsbanka er töluverður vandi á höndum því að einsýnt þykir að hækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti sem tekur gildi um áramót muni auka enn frekar á verðlagshækkanir.
Fram kemur í umfjöllun The Telegraph að þessi verðbólgumæling þýði að nánast engar líkur séu á því að Englandsbanki haldi áfram beinum kaupum á skuldabréfamarkaði til þess að auka peningamagn í umferð.
Þó svo að verðbólguþrýstingur hafi verið umtalsverður í breska hagkerfinu að undanförnu hefur Englandsbanki haldið að sér höndum þegar kemur að vaxtahækkunum, en vextir í Bretlandi hafa verið í sögulegu lágmarki um árabil, vegna slakans í hagkerfinu og dvínandi eftirspurn. Englandsbanki býst við að verðbólga nái hámarki á næsta ári og fari í 3,5% og bankinn muni ekki ná verðbólgumarkmiðum sínum fyrr en á árinu 2012.
Bent er á í umfjöllun The Telegraph að viðvarandi verðbólga sem er yfir markmiðum Englandsbanka kunni þó að grafa undan trúverðugleika peningamálastefnunnar til lengri tíma litið og leiða þar af leiðandi til þess að verðbólguvæntingar almennings og fyrirtækja fari vaxandi.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin