Viðskipti
| mbl
| 18.12.2010
| 17:00
2440 með lán í frystingu
mbl.is
Um 2440 einstaklingar voru með lán sín í frystingu þann 1. nóvember sl. og um 3000 einstaklingar höfðu þá fengið leiðréttingu á höfuðstól lána sinna í bönkum og sparisjóðum. Heildarfjárhæð skuldalækkunarinnar nam um 12 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í svari Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Þar kemur einnig fram, að rúmlega 1600 einstaklingar höfðu fengið afskrifaðar skuldir í bönkum og sparisjóðum eftir
svokallaðri 110%-leið sem hefur leitt til afskrifta upp á 8 milljarða króna. Þá höfðu um 140 einstaklingar fengið sértæka skuldaaðlögun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















