Viðskipti
| mbl
| 20.12.2010
| 16:58
Lækkun á hlutabréfamarkaði
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 0,45 prósent í viðskiptum dagsins, en velta var óvenjumikil í dag. Lokagildi vísitölunnar var 926,24 stig. Bréf BankNordik lækkuðu um 1,41 prósent og bréf Össurar lækkuðu um 0,49 prósent.
Langmest viðskipti voru með bréf Icelandair Group, eða fyrir 108 milljónir króna, en gengi bréfa félagsins breyttist þó ekki. Velta á hlutabréfamarkaði nam alls 111,3 milljónum króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















