Viðskipti
| AFP
| 21.12.2010
| 8:32
Snjór kostar Air France-KLM milljarða króna
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur fengið harða samkeppni frá vetrarríkinu um að fara í taugarnar á stjórnendum evrópskra flugfélaga. Í tvígang hefur flug raskast verulega í Evrópu í vetur vegna ofankomu og ísingar og hefur þetta kostað Air France-KLM flugfélagið 25-35 milljónir evra, 3,9-5,4 milljarða króna.
Pierre-Henri Gourgeon, forstjóri Air France-KLM, sagði í viðtali við Europe 1 útvarpsstöðina í morgun að kostnaðurinn vegna helgarinnar sé á bilinu 15-20 milljónir evra. Fyrra áhlaupið kostaði félagið 10-15 milljónir evra.
Gourgeon bað farþega félagsins afsökunar á þeim truflunum sem orðið hafa á flugi félagsins undanfarna daga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















