Einn vildi lækka vexti minna
Einn nefndarmaður af fimm í peningastefnunefnd Seðlabankans greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra í byrjun desember um að lækka stýrivexti bankans um 1 prósentu. Vildi umræddur nefndarmaður lækka vexti bankans minna.
Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar, sem birt var í dag.
Þar kemur fram, að fjórir nefndarmenn studdu tillögu seðlabankastjóra en tveir nefndarmenn hefðu kosið ögn breytta ákvörðun. Af þessum tveimur nefndarmönnum hefði annar heldur kosið 0,25 prósentum minni lækkun á öllum vöxtum Seðlabankans, en hinn hefði heldur kosið 0,5 prósentum minni lækkun innlánsvaxta.
Einn nefndarmaður greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra. Þótt þessi nefndarmaður væri sammála því að þrengja vaxtaganginn lagði hann til að vextir yrðu lækkaðir um 0,25 prósentum minna en í tillögu seðlabankastjóra og þannig yrði miðja vaxtagangsins lækkuð um 0,75 prósentur í stað 1 prósentu.



















