Greiðslu á láni til Íslandsbanka rift
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á kröfu þrotabús Íslenskrar afþreyingar hf. um að rift verði greiðslu á 305 milljóna króna skuld 365 hf. við Glitni banka.
Stofnað var til skuldarinnar í júlí 2008 en skuldin var greidd í júlí árið eftir með lánasamningi milli Rauðsólar, félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og Íslandsbanka. Rauðsól keypti í nóvember 2008 365 miðla ehf. út úr félaginu 365 hf. Í kjölfarið var nafni 365 hf. breytt í Íslenska
afþreyingu ehf. en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta í júní 2009.
Í niðurstöðu dómsins segir, að á árinu 2008 hafi Jón Ásgeir Jóhannesson verið stjórnarformaður 365 hf. (Íslenskrar afþreyingar hf.) og jafnfram farið með ráðandi hlut í Glitni banka (Íslandsbaka hf.), en hann fór með um 35% hlut í bankanum í gegnum félögin Baug Group Holding og Fl Group þegar lánssamningurinn milli 365 og Glitnis var gerður hinn 31. júlí 2008.
„Ráðstöfun stjórnar Íslenskrar afþreyingar hf., er áður bar nafnið 365 hf., á eignum félagsins til hagsbóta fyrir Íslandsbanka hf. á kostnað annarra kröfuhafa var því ekki tilhlýðileg enda bendir ekkert til annars en að forsvarsmenn Íslandsbanka hf. hafi vitað eða mátt vita um ógjaldfærni Íslenskrar afþreyingar hf. á þeim tíma," segir í dómnum.
Þar er m.a. vísað til fundargerðar stjórnarfundar 365 hf. hinn 1. nóvember 2008 þar sem komi fram að stjórnarmönnum hafi á þeim tíma verið ljóst að 365 hf. stefndi í gjaldþrot vegna neikvæðrar eiginfjárstöðu, og gjalddaga skuldabréfaflokks þá í næstu viku. Einn stjórnarmanna, Árni Hauksson, taldi að eignir dygðu ekki fyrir skuldum.
Að beiðni skiptastjóra athugaði endurskoðandi efnahag 365 hf. (Íslenskrar afþreyingar ehf.) eins og hann var eftir að Rauðsól ehf. keypti 365 miðla ehf. af 365 hf., hinn 3. nóvember 2008 og taldi hann að áætla mætti að skuldir félagsins umfram eignir hefðu verið 4.697.290.689 krónur, hinn 31. desember 2008.



















