Gengi krónunnar hefur lækkað frá september
Viðskiptavegið meðalgengi krónunnar hefur lækkað um 0,3% frá því í byrjun september. Á þeim tíma hefur gengi krónunnar lækkað um 0,7% gagnvart evru og hækkað um 3,2% gagnvart Bandaríkjadal.
Þetta kemur fram í skýrslu, sem peningastefnunefnd Seðlabankans hefur sent Alþingi.
Fram kemur í skýrslunni, að reglubundin kaup Seðlabankans á erlendum gjaldeyri, sem hófust 31. ágúst, virðist ekki hafa haft marktæk áhrif gengi krónunnar. Frá þeim tíma hafi bankinn keypt 28,5 milljónir evra af viðskiptavökum.
Verðbólga hefur haldið áfram að hjaðna frá því í byrjun september. Mæld verðbólga var 4,5% í ágúst samkvæmt vísitölu neysluverðs og hafði minnkað úr 8,5% í mars 2010. Í desember hafði hún hjaðnað í 2,5%, eða í 1,7% ef tímabundin áhrif neysluskatta eru frátalin. Því hefur verðbólgan náð verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir því, að mikill slaki í efnahagslífinu, styrking á gengi krónunnar, hófleg hækkun launakostnaðar og lækkandi verðbólguvæntingar muni stuðla að frekari hjöðnun verðbólgu fram á mitt næsta ár þegar spáð er að verðbólga nái lágmarki í 1½%.



















