Skilyrði sett fyrir yfirtöku Byrs sparisjóðs á Byr
Samkeppniseftirlitið hefur sett skilyrði fyrir yfirtöku Byrs sparisjóðs á Byr hf. Er þess meðal annars krafist að slitastjórn Byrs skuli tryggja samkeppnislegt sjálfstæði Byrs á íslenskum viðskiptabankamarkaði. Er það gert meðal annars með vali á stjórnarmönnum. Um er að ræða samþykki á samkomulagi sem náðist um Byr í október sl. Þar er kveðið á um að hlutur ríkisins í Byr hf. sé 5,2% en 94,8% hlutur verður eign Byrs sparisjóðs en í vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins.
Skal það gert m.a. með því að tryggja að í stjórn sparisjóðsins sitji einstaklingar sem eru óháðir eftirfarandi aðilum: Öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum á Íslandi sem starfa á sama markaði og Byr.
Þeim sem hafa yfirráð yfir öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum á Íslandi sem starfa á sama markaði og Byr.
Öðrum sem hafa verulega hagsmuni að gæta af rekstri Byrs og keppinauta félagsins, þ.á.m. 50 stærstu kröfuhafar Kaupþings, Glitnis og Byrs sparisjóðs.
Stjórnarmaður telst óháður ef hann er ekki starfsmaður eða stjórnarmaður hjá framangreindum aðilum. Hið sama gildir ef hann er ekki maki stjórnarmanns eða stjórnanda hjá ofangreindum aðilum, skyldur þeim í beinan legg eða fyrsta legg til hliðar.
Einnig telst stjórnarmaður óháður ef hann er ekki verulega háður framangreindum aðilum í störfum sínum. Þeir sem t.d. sinna reglubundið hagsmunagæslu og/eða ráðgjafarstöfum fyrir framangreinda aðila teljast vera verulega háðir.
Slitastjórn Byrs skal tryggja eftir því sem félaginu er unnt í krafti eignarhlutar síns að Byr eigi ekki í viðskiptalegu samstarfi við keppinauta sem fer í bága við samkeppnislög.
Stjórnarmenn í Byr skulu undirrita sérstaka yfirlýsingu um að þeir muni í stjórnarstörfum sínum fylgja ákvæðum samkeppnislaga nr. 44/2005 og ekki grípa til aðgerða sem geta raskað samkeppnislegu sjálfstæði sparisjóðsins.
Byr sparisjóður skal upplýsa Samkeppniseftirlitið á sex mánaða fresti um hverjir 50 stærstu þekktu kröfuhafar bankans séu á meðan slitastjórn heldur á ráðandi eignarhlut í félaginu. Jafnframt skal upplýst um allar breytingar í eignarhaldi sparisjóðsins.
Skilyrði ákvörðunar þessarar taka til allra beinna eða óbeinna aðgerða Byrs, þ. á m. í gegnum dótturfélög.
Fjármálaeftirlitið tók starfsemi Byrs sparisjóðs yfir með ákvörðun 22. apríl 2010 og fól Byr hf. að fara með tiltekin réttindi og eignir sparisjóðsins en eigið fé sparisjóðsins hafði þá um skeið verið undir lögbundnu lágmarki án þess að Byr hefði tekist að bæta þar úr með fullnægjandi hætti.
Fram kemur í samrunaskrá að frá yfirtöku FME á Byr sparisjóð hafi staðið yfir viðræður á milli íslenska ríkisins, slitastjórn Byrs sparisjóðs og Byr hf. um uppgjör á milli sparisjóðsins og hins nýja banka.
Samkomulag náðist um að kröfuhafar sparisjóðsins myndu taka við hlutafé í Byr hf. sem lið í uppgjöri krafna þeirra. Samkeppniseftirlitið telur ljóst að Byr sparisjóður náð yfirráðum yfir Byr hf. og um sé að ræða samruna í skilningi samkeppnislaga.
Hlutur ríkisins í Byr hf. er 5,2% en 94,8% hlutur verður eign Byrs sparisjóðs en í vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins, í samstarfi við slitastjórn Byrs sparisjóðs, þar til slitastjórnin kallar eftir honum, en það er miðað við að það gerist innan tveggja ára.
Fjármálaráðuneytið veitti í október Byr hf. allt að 5 milljarða króna víkjandi lán á markaðskjörum til 10 ára, sem ráðgert er að Byr hf. greiði upp á 5 árum. Kröfu Byrs sparisjóðs á Byr hf. verður breytt í hlutafé í Byr hf. en útgefið hlutafé í Byr hf. verður um 17,2 milljarðar. Það er þetta samkomulag sem Samkeppniseftirlitið féllst á með ákvörðun sinni.



















