Viðskipti
| AFP
| 29.12.2010
| 21:30
Dow Jones ekki hærri í tvö ár
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street í kvöld og hefur Dow Jones vísitalan ekki verið hærri í tvö ár. Hækkaði vísitalan um 9,84 stig eða 0,09% og er 11.585,38 stig.
Þrátt fyrir hækkun er veltan lítil á markaði enda margir sem hafa gefið fjárfestingum frí yfir hátíðarnar. S&P 500 hækkaði um 0,10% og Nasdaq um 0,15%.
Skyndibitakeðjan McDonald's leiddi hækkun Dow Jones í kvöld en hlutabréf keðjunnar hækkuðu um 1% í verði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















