Minnsta velta í tíu ár
Rúmlega 4.600 kaupsamningum var þinglýst árið 2010 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæpum 115 milljörðum króna. Árið 2009 var veltan rúmlega 99 milljarðar króna í tæplega 3.700 kaupsamningum.
Að síðasta ári undanskildu þarf að fara aftur til ársins 1999 til þess að finna jafn litla veltu á fasteignamarkaði. Það ár var heildarvelta á fasteignamarkaði 113,5 milljarðar króna og voru seldar 11.579 fasteignir.
Heildarvelta fasteignaviðskipta hefuraukist um tæplega 16% frá árinu 2009 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 25%, þar áður voru kaupsamningar síðast færri árið 1988 er þeir voru 3.717 talsins, segir á vef Þjóðskrár.
Stefnir í 41% aukningu á höfuðborgarsvæðinu
Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í rúmlega 83 milljarða króna, kaupsamningar verði rúmlega 2.900 og meðalupphæð kaupsamnings verði um 28,4 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2009 var tæplega 72 milljarðar króna og voru kaupsamningar tæplega 2.100.
Meðalupphæð samninga árið 2007 var um 34,6 milljónir króna. Kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgar því um 41% frá árinu 2009, en þar áður voru þeir líkt og á landinu öllu síðast færri árið 1988.



















