Exista sektuð fyrir brot fyrri eigenda
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir stýrðu Exista þegar brotin voru framin. Brynjar Gauti
Þann 20. desember síðastliðinn ákvað Fjármálaeftirlitið að sekta Exista fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti og nemur sektin 15 milljónum króna. Er Exista talin hafa brotið gegn upplýsingaskyldu á innherjaupplýsingum þegar félagið sendi ekki tilkynningu til Kauphallar Íslands um 8,4 milljarða króna lán, sem Exista veitti félaginu ELL 182 í tengslum við sölu á 39,6 prósenta hlut í Bakkavör Group árið 2008.
ELL 182 er félag í eigu bræðranna Lýðs og Ágústss Guðmundssona, sem á þessum tíma voru stærstu eigendur Exista. Telur FME að upplýsingar um lánið teljist til innherjaupplýsinga, sem félaginu hafi borið að birta. Um hafi verið að ræða verulega fjármuni sem lánaðir voru gegn veði í hlutabréfum Bakkavarar. Í ljósi þess að félagið var í greiðsluvandræðum á þessu tímabili telur Fjármálaeftirlitið upplýsingarnar þess eðlis að þær hafi varðað greiðsluhæfi og fjárhag félagsins og hafi þar með verið líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninga félagsins.
Ófullnægjandi upplýsingar
Fleira er tekið til í ákvörðun eftirlitsins. Exista birti ekki opinberlega upplýsingar um gjaldfellingar og stefnu á hendur félaginu er vörðuðu verulegar fjárhæðir, en FME telur þessar upplýsingar einnig vera innherjaupplýsingar sem borið hafi að birta. Tilkynningar Exista um yfirvofandi vanefndir hafi haft að geyma ófullnægjandi upplýsingar fyrir fjárfesta og ekki hafi verið tilkynnt um framhald mála vegna þessara vanefnda.
Sem áður segir nemur sektin, sem lögð var á Exista, fimmtán milljónum króna og segir í ákvörðun FME að við ákvörðun fjárhæðarinnar hafi verið tekið mið af alvarleika brotsins, þar á meðal hversu margþætt það var og hve gróft brota á upplýsingaskyldu útgefanda á skipulögðum markaði var að ræða.
Tekið er fram í ákvörðuninni að brotin, sem um ræðir, hafi átt sér stað í tíð fyrrverandi eigenda og stjórnenda Exista hf., en nýir eigendur hafa nú tekið félagið yfir og ný stjórn verið kjörin.



















