Fagnar áhuga á Icelandic Group
Finnbogi Jónsson. mbl.is/Kristinn
„Við fögnum þessum áhuga sem fjárfestar sýna Icelandic,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins en kanadíska fyrirtækið High Liner Foods hefur lagt fram tilboð í Icelandic Group upp á 52,4 milljarða króna. „Það staðfestir okkar mat að þarna sé um mjög áhugavert félag að ræða og í raun staðfestir okkar trú að félagið hafi mikla framtíðarmöguleika. Þessi áhugi á félaginu er mjög ánægjulegur.“
Framtakssjóðurinn á nú í viðræðum við norðurevrópska fjárfestingarsjóðinn Triton en eigendur High Liner Foods segja að samningaviðræður við aðra muni ekki hefjast fyrr en 8. janúar nk. Heimildir herma að Triton hafi þegar gert tilboð í Icelandic Group sem sé mjög sambærilegt tilboði High Liner Foods.
„Markmið Framtakssjóðsins með sölu á hlut í Icelandi er tvíþætt: Annars vegar að hámarka virði eigna sjóðsins en jafnframt, sem er líka mikilvægt, að standa vörð um hagsmuni íslensks sjávarútvegs varðandi sölu sjávarafurða,“ segir Finnbogi.



















