Viðskipti
| Morgunblaðið
| 6.1.2011
| 5:30
Enn stefnt að skráningu Icelandic á markað
Ennþá er stefnt að því að skrá Icelandic Group á hlutabréfamarkað, eins og sagt var þegar Framtakssjóður Íslands keypti hlut í fyrirtækinu.
Ágúst Einarsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, segir í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag, að viðræður við erlenda fjárfestingarsjóðinn Triton snúi að sölu á einstökum erlendum eignum fyrirtækisins, svo sem verksmiðjum í útlöndum.
„Ef til stæði að selja fyrirtækið allt væri framkvæmdin að sjálfsögðu allt önnur, en viðræðurnar núna snúa aðeins að sölu á tilteknum erlendum eignum Icelandic, sem mun ekki hafa nein áhrif á íslenskt atvinnulíf.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















