Samtals milljarður í sektir
Samkeppniseftirlitið sektaði á síðasta ári níu fyrirtæki um samtals tæpan milljarð króna í fimm málum. Alls komu 163 má til kasta stofnunarinnar á síðasta ári en í nýju ársriti Samkeppniseftirlitsins kemur fram að frá bankahruni hafi verkefni aukist til muna, bæði fjöldi athugana og umfang þeirra.
Hæsta sektin á síðasta ári, 400 milljónir króna, var lögð á Skiptasamstæðuna vegna rannsóknar á ólögmætu samráði milli Tæknivara, dótturfélags Skipta, og Hátækni á heildsölumarkaði fyrir sölu á farsímum.
Þá sektaði Samkeppniseftirlitið Haga hf. og fimm kjötvinnslufyrirtæki um samtals rúmar 400 m.kr. vegna samkeppnishamlandi samstarfs. Lyf og heilsa hf. var sektað um 130 milljónir, en fyrirtækið var talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu með aðgerðum sem höfðu það að markmiði að hindra að nýr keppinautur í lyfsölu á Akranesi næði fótfestu á markaðnum. Lyf og heilsa kærðu
ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem staðfesti brotin en lækkaði sektirnar um 30 milljónir.
Á árinu 2010 tók Samkeppniseftirlitið rúmlega 23 ákvarðanir í samrunamálum samanborið við 24 ákvarðanir á árinu 2009. Langflestir samrunanna vörðuðu yfirtöku banka á atvinnufyrirtækjum. Setti Samkeppniseftirlitið 15 þessara samruna ítarleg skilyrði.
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi fjórar húsleitir á árinu 2010. Ein húsleitanna varðar grun um misnotkun á markaðsráðandi stöðu og þrjár þeirra grun um ólögmætt samráð.
Á árinu 2010 féllu 13 úrskurðir í áfrýjunarnefnd samkeppnismála, auk þess sem 10 mál voru til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur eða Hæstarétti.



















