Viðskipti
| mbl
| 7.1.2011
| 11:14
Dregur úr hagvexti á evrusvæði
Hagvöxtur á evrusvæðinu svonefnda var minni á þriðja fjórðungi síðasta árs en áður var talið. Verg landsframleiðsla ríkjanna 16, sem nota evru, jókst að meðaltali um 0,3% á tímabilinu en bráðabirgðatölur bentu til 0,4% vaxtar. Ársfjórðunginn á undan var hagvöxtur 1% á svæðinu.
Hagvöxtur í Bandaríkjunum var 0,6% á sama tímabili og 1,1% í Japan.
Mest hægði á hagvexti í Þýskalandi milli annars og þriðja ársfjórðungs. Verg landsframleiðsla jókst þar um 2,3% á öðrum fjórðungi, aðallega vegna aukins útflutnings, en um 0,7% á þeim þriðja.
Landsframleiðsla jókst í öllum evruríkjunum á þriðja ársfjórðungi nema Grikklandi þar sem samdráttur mældist 1,3%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















