Viðskipti
| Morgunblaðið
| 10.1.2011
| 5:30
| Uppfært
7:48
Kaupmáttur Breta rýrnar
Kaupmáttur fer nú rýrnandi í Bretlandi, en launahækkanir hafa ekki haldið í við verðlagshækkanir að undanförnu. Í frétt Daily Telegraph segir að samkvæmt launavísitölu VocaLink hafi laun í Bretlandi, bæði í einkageiranum og opinbera geiranum, hækkað um 1,1% á ársgrundvelli í september, október og nóvember síðastliðnum.
Í nóvember hafði neysluverðsvísitalan hækkað um 3,3% næstu tólf mánuði á undan og búist er við því að hún hafi enn farið hækkandi síðan þá. Telegraph ræðir við Marion King, yfirmann hjá VocaLink, sem segir að hækkandi verðlag komi niður á arðsemi fyrirtækja, sem aftur valdi því að þau verði að skera niður og forðast launahækkanir. „Þetta eru tvöfaldar slæmar fréttir fyrir neytendur, því ekki aðeins lækkar raunvirði launa, heldur eykst verðbólgan einnig,“ segir hann við blaðið. „Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir efnahagslífið.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















