Mikið tap á rekstri Eikar í Færeyjum
Tap af rekstri Eikar banka í Færeyjum nam 2,3 milljörðum danskra króna, 47 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi en í lok hans tók danska ríkið rekstur bankans yfir.
Fram kemur í danska viðskiptablaðinu Børsen í dag, að rekja má 0,9 milljarða danskra króna af tapinu til dótturfélags Eikar í Danmörku en 1,4 milljarða tap var á rekstri starfseminnar í Færeyjum.
Blaðið hefur eftir Jørn Astrup Hansen, sem nú stýrir starfsemi Eikar fyrir hönd danska tryggingasjóðsins Finansiel Stabilitet, að í ljósi þessarar afkomu bankans hafi ekki verið aðrir kostir fyrir hendi en að taka yfir rekstur bankans.
Eigið fé Eikar banka var 1,3 milljarðar danskra króna í upphafi þriðja fjórðungs síðasta árs en á næstu þremur mánuðum þurrkaðist það út og var neikvætt um 1 milljarð í lok ársfjórðungsins. Hlutabréf bankans voru því orðin verðlaus.



















