Kortavelta eykst
Kreditkortavelta í desember nam 26,5 milljörðum og var það 4% meiri velta í krónum talið en í mánuðinum á undan. Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 12,7% milli ára.
Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka, að þetta sé mun meiri raunaukning en sést hafi á milli ára síðan í janúar 2008, en kortavelta dróst mikið saman í kjölfar hrunsins. Segir Íslandsbanki, að þessi mikla aukning í desember sé fyrst og fremst vegna mikillar raunaukningar í erlendri kortaveltu á milli ára, en erlend kortavelta jókst um ríflega 47% að raungildi og á sama tíma jókst innlend kreditkortavelta um 7,4%.
Debetkortavelta
í innlendum verslunum í desember 25,2 milljörðum og jókst að raungildi um
2,4% frá sama mánuði árið 2009. Raunbreyting kreditkortaveltu
og debetkortaveltu í innlendum verslunum jókst um 7,5% að raungildi í desember frá
sama mánuði árið áður. Er það fimmti mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst
að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti. Þá er þetta mesti vöxtur sem
sést hefur á þennan mælikvarða síðan í desember 2007.



















