Viðskipti
| mbl
| 13.1.2011
| 12:14
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi
Englandsbanki ákvað í morgun að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum þrátt fyrir að verðbólga mælist nú yfir verðbólgumarkmiðum bankans. Stýrivextir í Bretlandi eru 0,5%.
Stýrivextir hafa verið óbreyttir í Bretlandi frá því í mars árið 2009. Hinsvegar mælist verðbólga nú um 3% á ársgrundvelli og segir breska dagblaðið The Daily Telegraph að væntingar séu um að hún fari í 4% á næstu mánuðum. Verðhækkanir á matvælum og eldsneyti ásamt áhrifum skattahækkana viðhalda verðbólguþrýstingnum um þessar mundir. Hinsvegar kemur á móti að búist er við að áhrifa aðhaldsaðgerða stjórnvalda á hagvöxt komi fram að fullum þunga á næstunni.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin