Spá 0,5 prósenta vaxtalækkun
Grening Íslandsbanka spáir því, að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 2. febrúar.
Við þetta myndu vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana og hámarksvextir innistæðubréfa lækka í 3% og 3,75% hvor um sig, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 4% og daglánavextir í 5%.
Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram, að gengi krónunnar hafi lækkað aðeins frá vaxtaákvörðun í desember og verðbólga farið úr 2,6% í 2,5%.
Íslandsbanki segir að fastlega megi reikna með því að í næstu yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar verði endurtakið að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur að vera fyrir hendi að slaka eitthvað frekar á aðhaldinu í peningamálum. Er því spáð,í að nefndin verði komin með veðlánavexti bankans niður í 3,5% fyrir lok fyrsta ársfjórðungs í ár en virkir raunstýrivextir verði þá engu að síður svipaðir og þeir eru nú.



















