Viðskipti
| mbl
| 14.1.2011
| 7:11
| Uppfært
9:45
Hagnaður Intel eykst
Hagnaður bandaríska örgjörvaframleiðandans Intel nam 3,39 milljörðum dala, eða 59 sentum á hlut á síðasta fjórðungi ársins 2010. Er þetta meiri hagnaður en sérfræðingar höfðu spáð og hækkaði gengi bréfa félagsins um 2% á eftirmarkaði á Wall Street í kjölfarið.
Tekjur Intel námu 11,5 milljörðum dala og jukust um 8%.
Afkoma Intel, sem er stærsti örgjörvaframleiðandi heims, endurspeglar aukna eftirspurn eftir einkatölvum en 350 milljónir slíkra voru framleiddar á síðasta ári. Paul Otellini, forstjóri Intel, segir að yfir 1 milljón einkatölva seljist á hverjum degi í heiminum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















