Verksmiðja Actavis stækkar um helming
Actavis á Íslandi hefur lokið við að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði og eykst framleiðslugetan við það úr einum milljarði taflna í einn og hálfan milljarð taflna á ári. Starfsfólki Actavis fjölgaði um 100 í fyrra, þar af 70 vegna stækkunar verksmiðjunnar.
Verksmiðjan verður opnuð formlega í dag kl.10:30, að viðstöddum forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, segir í tilkynningu frá Actavis.
Fram kemur að um 700 manns starfi nú hjá Actavis á Íslandi. Unnið sé allan sólarhringinn í verksmiðjunni og sé hún fullbókuð sjö mánuði fram í tímann; það þýði að öll framleiðsla næstu sjö mánuðina sé þegar seld.
Verksmiðjan framleiði töflur og hylki, en samvinna þróunarmiðstöðvar Actavis í Hafnarfirði og verksmiðjunnar sem nú sé að stækka þýði að hér á landi séu mörg af nýjustu og verðmætustu lyfjum félagsins framleidd og flutt út. Mest sé flutt út til Evrópu.
Heildarkostnaður við stækkun verksmiðjunnar nemur um 1,2 milljörðum króna.
„Tæki og tól í verksmiðjunni koma frá Bandaríkjunum og Evrópu, en verktakar við bygginguna eru íslenskir. Þótt byggingin sé mjög sérhæfð, hefur ekki þurft að kaupa sérhæfða ráðgjöf erlendis frá til að sinna verkefninu; sú sérfræðiþekking er til staðar innan Actavis og hjá íslenskum verkfræðistofum. Rík áhersla er lögð á gæðamál og uppfyllir verksmiðjan í Hafnarfirði kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð (Good Manufacturing Practice). Actavis á Íslandi hefur jafnframt hlotið ISO 14001 vottun fyrir umhverfisstjórnun og OHSAS 18001 vottun til staðfestingar á því að félagið hafi staðist úttekt á heilsu– og öryggisstjórnunarkerfi sínu á Íslandi.
Útflutningsverðmæti lyfja sem framleidd voru í verksmiðju Actavis í Hafnarfirði í fyrra, námu um 12 milljörðum króna. Til samanburðar má geta þess að fjárlög 2010 gerðu ráð fyrir tæplega 9 milljörðum króna til reksturs Háskóla Íslands. Lyfjaverksmiðjur Actavis eru alls 14 í 12 löndum. Starfsmenn Actavis samsteypunnar eru um 10.000 í yfir 40 löndum. Heildarvelta samstæðunnar nam um 1.7 milljörðum evra í fyrra,“ segir ennfremur í tilkynningunni.



















