Fréttaskýring: Fluttu mörg hundruð milljarða eignir frá Lúxemborg

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans var í gær, í Héraðsdómi Reykjavíkur, úrskurðaður í gæsluvarðhald ... stækka

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans var í gær, í Héraðsdómi Reykjavíkur, úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar. mbl.is/RAX

Morgunblaðið Bjarni Ólafsson og Þórður Gunnarsson

Félögin sem sérstakur saksóknari hefur nefnt í tengslum við rannsókn sína á markaðsmisnotkun Landsbankans ber á góma í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar vegna rannsóknarinnar, sagði í skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Alþingis að nokkur fjöldi viðskiptavina Landsbankans hefði falast eftir því að fá lán hjá bankanum í gegnum dótturfélagið í Lúxemborg.

Ástæðan var sú að viðskiptavinirnir sem um ræðir litu svo á að bankaleynd væri í Lúxemborg, „en á það væri ekki hægt að treysta á Íslandi,“ segir orðrétt í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Lánin í Lúxemborg voru þó veitt með ábyrgð móðurfélags Landsbankans á Íslandi. Einnig giltu aðrar reglur um áhættuskuldbindingar dótturfélags gagnvart móðurfélagi í Lúxemborg, en til að mynda í Bretlandi.

Keyptu lánasafnið frá Lúx

Í aðdraganda bankahrunsins í október 2008 var farið fram á að stórar áhættuskuldbindingar yrðu fluttar frá dótturfélagi Landsbankans í Lúxemborg og heim til Íslands. Sú beiðni kom frá forsvarsmönnum dótturfélagsins í Lúxemborg, að því er kom fram í máli Sigurjóns í skýrslutöku rannsóknarnefndarinnar.

Í kjölfarið voru flutt lán upp á samtals 784 milljónir evra, eða tæplega 120 milljarða króna miðað við gengisskráningu Seðlabanka Íslands í gær. Í fréttatilkynningu frá sérstökum saksóknara sem send var fjölmiðlum í gær var meðal annars nefnt að til rannsóknar væru lán til félaganna Hunslow S.A., Pro-Invest Partners, Sigurðar Bollasonar ehf. og Bruce Assets Limited. Lán tveggja fyrstnefndu félaganna eru meðal þeirra sem voru færð frá dótturfélagi bankans í Lúxemborg til Íslands í aðdraganda hrunsins.

Fram kemur í rannsóknarskýrslunni að lán til Hunslow hafi numið alls 13 milljónum evra og lán til Pro-Invest Partners hafi verið tæplega 41 milljón evra. Ekki er hægt að fullyrða út frá upplýsingum hvort lánin til Sigurðar Bollasonar ehf. hafi verið í Lúxemborg eða á Íslandi. Samkvæmt ársreikningi þess félags, sem heitir í dag BSU ehf., fyrir 2008 kemur fram að eigið fé félagsins er neikvætt um tæplega 4,5 milljarða króna. Enda var eina eign félagsins hlutabréf í Landsbankanum.

Eins og áður sagði var Sigurjón Árnason úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar. Lögmaður bankastjórans fyrrverandi, Sigurður G. Guðjónsson, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þær sakir sem á Sigurjón væru bornar sneru að hluta að meintum brotum í gegnum aflandsfélög sem stofnuð voru utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans. „Það vill svo til að höfundur þessa kerfis heitir Gunnar Andersen og situr hann nú í Fjármálaeftirlitinu og kærir bankastjórann fyrrverandi fyrir þetta brot,“ sagði Sigurður G. í gær. Gunnar Andersen vísaði þessum ásökunum á bug í þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær.

Sigurður segir einnig að forsendur fyrir kröfu um gæsluvarðhald yfir Sigurjóni séu mjög hæpnar. „Sigurjón var kallaður til yfirheyrslu í júní 2009 vegna rannsóknar á þessum meintu brotum og er svo úrskurðaður í gæsluvarðhald núna svo hann geti ekki spillt sönnunargögnum.“ Sigurður segir að líta megi svo á að verið sé að nota gæsluvarðhald sem refsingu áður en dómur er fallinn í málinu, því erfitt sé að fullyrða að verið sé að verja rannsóknarhagsmuni í málinu.

Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta hjá Landsbankanum, var einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær, til 21. janúar. Lögmaður Ívars er Jóhannes Rúnar Jóhannsson. Svo vill til að Jóhannes Rúnar situr einnig í skilanefnd Kaupþings. Í Morgunblaðinu í gær var vitnað til RÚV sem greindi frá því að Steinþór Gunnarsson hefði verið færður fyrir dómara og gæsluvarðhalds krafist yfir honum. Það reyndist rangt.

Halldór kemur á sunnudag

Sérstakur saksóknari handtók sjö manns í fyrradag og færði til yfirheyrslu. Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns, var ekki einn þeirra. Friðjón R. Friðjónsson, lögmaður Halldórs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að stefnt væri að því að Halldór kæmi til landsins á morgun, sunnudag: „Það hefur verið í hans anda frá upphafi að upplýsa málið eins vel og hægt er.“ Halldór vildi sjálfur ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær.
Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta hjá Landsbankanum var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. janúar.

Ívar Guðjónsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta hjá Landsbankanum var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. janúar. mbl.is/RAX

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir