Viðskipti
| mbl
| 17.1.2011
| 11:59
Spáir lækkun vísitölu
Greiningardeild Arion banka spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,8% milli desember og janúar, aðallega vegna áhrifa frá útsölum. Þá hefur sú ákvörðun Hagsstofunnar, að taka útvarpsgjald út úr vísitölunni einnig talsverð áhrif.
Á móti lækkun í janúar vega skatta- og gjaldskrárhækkanir hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















